Textílmennt
Grunnskóli Drangsness 2019-2020 Námsgrein: Textílmennt Kennarar: Unnur Ágústa Gunnarsdóttir Tímafjöldi á viku: 1 kennslustund á mið- og vorönn. Skólaárið skiptist í haust-, mið- og vorönn |
Vinna með textíl er einnig fléttuð inn í nám í náttúrugreinum þar sem nytjar og dýraafurðir s.s. eins og ull eru skoðaðar sérstaklega í ólíkum verkefnum til þess að auka skilning og þekkingu á hráefni og tegundum textílefna. Saga textíls og þróun aðferða við að vinna klæðnað, listaverk o.fl. er kynnt í upphafi náms í textílmennt. |
Hæfniviðmið, við lok 4. bekkjar getur nemandi |
Leiðir, kennari |
Helstu verkefni |
Námsmat |
Handverk, aðferðir og tækni notað einfaldar aðferðir greinarinnar og beitt viðeigandi áhöldum, • unnið úr nokkrum gerðum textílefna, • unnið eftir einföldum leiðbeiningum. |
|||
Sköpun, hönnun og útfærsla tjáð hugmyndir sínar með einfaldri skissu, •skreytt textílvinnu á einfaldan hátt, • gert grein fyrir mismunandi tegundum handverks og notað nokkur hugtök sem tengjast greininni, • leitað að einföldum upplýsingum í nokkrum miðlum. |
|||
Menning og umhverfi sagt frá íslensku hráefni og unnið með það á einfaldan hátt, • sagt frá nokkrum tegundum textílefna, • fjallað um mismunandi klæðnað fólks með tilliti til veðurfars, athafna og tilefna, • Notað ný og endurunnin efni í textílvinnu. |
Grunnskóli Drangsness 2019-2020 Námsgrein: Textílmennt Kennarar: Unnur Ágúst Gunnarsdóttir Tímafjöldi á viku: 1-2 kennslustundir á haust- og miðönn Skólaárið skiptist í haust-, mið- og vorönn |
Vinna með textíl er einnig fléttuð inn í nám í öðrum greinum sér í lagi í smiðju þar sem nemendur koma að gerð búninga fyrir árshátíðarsmiðju, miðla þekkingu sinni í gegnum textíl í öðrum smiðjum og vinna með uppruna og gerð fatnaðar, fatasóun o.fl. sem tengist textíl í samfélagsgreinum. |
Hæfniviðmið, við lok 7. bekkjar getur nemandi |
Leiðir, kennari |
Helstu verkefni |
Námsmat |
Handverk, aðferðir og tækni beitt grunnaðferðum og áhöldum greinarinnar, • fjallað um efnisfræði og unnið úr fjölbreyttum textílefnum, • unnið með einföld snið og uppskriftir. |
|||
Sköpun, hönnun og útfærsla þróað eigin hugmyndir í textílverk og unnið eftir ferli, • notað fjölbreyttar aðferðir við skreytingar textíla, útskýrt hagnýtt og fagurfræðilegt gildi handverks og fjallað um fagurfræði í eigin verkum, •nýtt helstu miðla til að afla upplýsinga um textíla og textílvinnu. |
|||
Menning og umhverfi fjallað um íslenskt hráefni í samhengi við sögu og sjálfbærni, • gert grein fyrir helstu eiginleikum náttúruefna og gerviefna, •sett textílvinnu og textílverk í samhengi við sögu, samfélag og listir, •gert grein fyrir endurnýtingu og efnisveitum. |
Grunnskóli Drangsness 2019-2020 Námsgrein: Textílmennt Kennarar: Unnur Ágústa Gunnarsdóttir stundakennari Tímafjöldi á viku: 1-2 kennslustundir á haust- og miðönn Skólaárið skiptist í haust-, mið- og vorönn |
Vinna með textíl er einnig fléttuð inn í nám í öðrum greinum sér í lagi í smiðju þar sem nemendur koma að gerð búninga fyrir árshátíðarsmiðju, miðla þekkingu sinni í gegnum textíl í öðrum smiðjum og vinna með uppruna og gerð fatnaðar, fatasóun o.fl. sem tengist textíl í samfélagsgreinum. Textílmennt fellur einnig undir valgreinar sem kenndar eru í unglingadeild en ávallt er stefnt að því að nemendur geti valið á milli valgreina sem byggja á list- og verkgreinum þar sem nemendur fá færi á að dýpka þekkingu sína enn frekar en þó ekki síst að vinna sjálfstætt að sköpun með fjölbreyttan efnivið s.s. eins og textíl. |
Hæfniviðmið, við lok 10. bekkjar getur nemandi |
Leiðir, kennari |
Helstu verkefni |
Námsmat |
Handverk, aðferðir og tækni beitt fjölbreyttum aðferðum og áhöldum greinarinnar við formun textílafurða, • rökstutt eigið val á textílefni eftir viðfangsefni og efnisfræði, •unnið með snið og uppskriftir, tekið mál, áætlað stærðir og efnisþörf. |
|||
Sköpun, hönnun og útfærsla beitt skapandi og gagnrýnni hugsun í hönnun og textílvinnu, • skreytt textílafurð á skapandi og persónulegan hátt, • lagt mat á eigin vinnubrögð, sagt frá góðu handbragði, formi og hönnun og notað til þess viðeigandi hugtök, • nýtt margvíslega miðla til að afla upplýsinga á gagnrýninn hátt um efni sem tengist textílsögu, hönnun og iðnaði. |
|||
Menning og umhverfi •útskýrt tjáningarmáta og tákn textíla og tísku út frá mismunandi stíl, áferð og efniskennd, í tengslum við sérkenni íslenskrar textílvinnu, handverks, textílsögu og menningararfs, • fjallað um helstu tákn og merkingar vefjarefna, • sagt frá textíliðnaði og starfsgreinum tengdum fatagerð og textílhönnun, • sagt frá vinnslu textílefna við mismunandi aðstæður og sett í samhengi við sjálfbærni og umhverfisvernd. |