Starfsmaður óskast!
Grunnskóli Drangsness auglýsir eftir starfsmanni í 45% starf í Skólaseli og frá og með 15. ágúst 2020 til 1. júní 2021. Um tímabundið starf er að ræða.
Í Skólaseli er boðið upp á skóladagvist fyrir yngstu nemendur skólans
(1.-3. bekkur) frá því að skóla lýkur og til kl. 16:00 alla virka daga nema föstudaga. Starfsmaður Skólasels mótar dagskrá selsins í nánu samstarfi við skólastjóra, umsjónarkennara yngstu deildar, börn og foreldra.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Menntun og eða reynsla sem nýtist í starfi með börnum skilyrði
- Framúrskarandi færni í samskiptum, frumkvæði í fjölbreyttri frístund innandyra sem utan og faglegur metnaður.
- Góðir skipulagshæfileikar, ábyrgð og stundvísi.
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við
viðkomandi stéttarfélag.
Allar nánari upplýsingar um ofangreind störf veitir Aðalbjörg
Óskarsdóttir skólastjóri í síma 451-3436 eða í gegnum netfangið
skoli@drangsnes.is
Með umsóknum skal fylgja ferilskrá, meðmæli, vottorð um hreina
sakaskrá og stutt greinargerð um ástæðu umsóknar.
Umsóknarfrestur er til og með 26.júní 2020