Móttökuáætlun

Um móttökuáætlun er fjallað í starfsáætlun, móttökuáætlun tekur til nýrra nemenda við skólann, erlendra nemenda og nýrra starfsmanna.

Móttaka nýrra nemenda

Nemendur sem hefja nám við skólann eftir að hafa stundað nám við aðra skóla eru sérstaklega boðnir velkomnir og er fyrsta skólaárið fylgst vel með líðan þeirra og gengi í samstarfi við foreldra. Umsjónarkennari og skólastjóri hafa umsjón með því að fylgja aðlögun nýrra nemenda eftir og grípa inn í ef þörf er á. Hér á eftir fylgir skipulag um mótttöku nýrra nemenda.

Móttaka nýrra nemenda sem koma úr leikskóla

Að vori

Nemendur á síðasta ári leikskólans koma í reglulegar heimsóknir í skólann áður en hin eiginlega skólaganga hefst. Dæmi um skipulag þessara heimsókna má sjá hér að neðan. Hlé er gert í verkefnavikum.

JANÚAR FEBRÚAR MARS APRÍL MAÍ
Fundað með leikskóla, foreldrum og barni Fundað með foreldrum     Sund
2 kest 2-5 kest 2-5 kest 2-5 kest Sund
2 kest 2-5 kest 2-5 kest 2-5 kest Sund
2 kest 2-5 kest 2-5 kest 2-5 kest Sund
2 kest 2-5 kest 2-5 kest 2-5 kest  

Skólastjóri, umsjónarkennari yngri barnadeildar og starfsmenn Leikskóla á Drangsnesi skipuleggja þessar heimsóknir í sameiningu en þær skulu frágengnar í lok haustannar á hverju skólaári.

Í fyrstu heimsókninni tekur umsjónarkennari yngri deildar á móti leikskólanemum og einum starfsmanni leikskólans og sýnir þeim skólann. Í þessari heimsókn eru foreldrar sérstaklega boðnir velkomnir með og nemendur grunnskólans kynna sig og skólann sinn fyrir verðandi nemendum. Hverjum nýjum nemenda er útdeilt „mentor“ úr nemendahópi skólans sem hefur m.a. það hlutverk að veita nýnemanum öryggi og veita upplýsingar um skólastarfið.

  • Kennarar grunnskólans boða börnin í samráði við leikskólakennara og ráða stærð hópanna sem boðaðir eru og þeirri dagskrá sem boðið er upp á.
  • Heimsóknin taki um tvær kennslustundir.

Að hausti 

Nemendur og foreldrar

Í ágúst, í byrjun nýs skólaárs fá nemendur og foreldrar þeirra bréf með öllum helstu upplýsingum um skólastarfið framundan.

Móttaka nýrra starfsmanna

Við ráðningu er nýju starfsfólki sýnt skólahúsnæðið og kynnt fyrir öðru starfsfólki. Skólastjóri fundar með nýju starfsfólki um ýmislegt sem varðar húsnæði skólans og störf viðkomandi. Nýtt starfsfólk fær jafnframt upplýsingar um trúnaðarskyldur.

Þagnarskylda undirrituð.

Siðareglur kennara skoðaðar.

Farið yfir starfslýsingu.

Starfsmanni veittur aðgangur að ýmsum gögnum, svo sem sameign skólans, eða eftir því sem við á.

Móttaka nemenda af erlendum uppruna

Móttökuáætlun_ísat_nemenda