Samfélagsgreinar á miðstigi

Þessi kafli verður uppfærður haust 2025

Grunnskóli Drangsness 2025 – 2026
Námsgrein: Samfélagsgreinar í yngstu deild
Kennarar:
Tímafjöldi á viku: 2 kennslustundir á viku auk kennslustunda í smiðju. Skólaárið skiptist í haust-, mið- og vorönn 
Í 1.-4. bekk fer nám í samfélagsgreinum fram í smiðjutímum og er samþætt öðrum námsgreinum s.s. eins og íslensku og náttúrufræði. Unnið er eftir fyrirframákveðnum þemum yfir skólaárið sem taka m.a. til landafræði, sögur, trúarbragðafræði, siðfræði o.s.frv. Lífsleikni er kennd sérstaklega á haustönn og námsefnið Spor 1 lagt til grundvallar. Rík áhersla er á að þjálfa félagsfærni nemenda og leitað stuðnings fagaðila ef þörf krefur. Bókmenntir leika lykilhlutverk í kennslu samfélagsgreina og leitast kennarar við að nota texta þar sem fengist er við ólík samfélagsform, fjölskyldugerðir, trúar- og menningarheima ásamt öðru. Landafræði er fyrst og fremst kennd á myndrænan hátt og með árlegum skólaferðalögum en námsefnið Lubbi finnur málbein felur í sér afar hentuga leið til þess að kynna Ísland fyrir nemendum.