Flórusmiðja
Haustið 2015 hófst smiðjuárið á Flórusmiðju en yfirmarkmið þeirrar smiðju var að opna augu nemenda fyrir flórunni á svæðinu, velta fyrir sér flokkun plantna, nýtingu þeirra í gegnum tíðina og því að nemendur gerðu sér m.a. grein fyrir muninum á milli villtra plantna og þeirra sem sjá má í ræktuðum húsagörðum. Hér að neðan má sjá brot úr smiðjuskipulagi Flórusmiðjunnar sem kennarar skólans unnu í teymisvinnu.
Flóran á Drangsnesi |
Flokkun platna (plöntulykill) |
Nýting platna þá og nú |
Pressuð blóm |
Markmið |
Markmið |
Markmið |
Markmið |
– þekkja helstu plöntur sem vaxa á Drangsnesi og í nágrenni s.s. ljónslappa, maríustakk, fjólur, blágresi vallhumal, njóla, hvönn, kerfil…
– kanni hvar plönturnar vaxa og við hvaða skilyrði
– kanni plöntur í húsagörðum og taki viðtöl við eigendur nokkurra garða og spyrja m.a. hvaðan plönturnar eru fengnar og hverjar uppáhaldsplöntur eigendanna eru og hvernig þær eru nýttar
– læri nokkur ljóð og eða söngva sem fjalla um plöntur (Ég leitaði blárra blóma…)
-skipuleggi verkefnin út frá tíma.
|
– skoði hvaðan flokkunarkerfið er komið (Linnaeus) og geti sagt frá Linnaeusi og hvernig hann byggði upp plöntulykillinn sinn
– læri að nota plöntulykla bæði á bókarformi og rafrænt (í pöddum)
– flokki plönturnar sem safnað hefur verið
– búi til plöntulykil… |
– læri að þekkja helstu leiðir til þess að nýta plöntur t.d. til lækninga og til matar (ath. galdra)
– skoði hvernig plöntur voru notaðar áður fyrr t.d. á miðöldum (klaustrin), af langömmum og öfum o.s.frv.
– finni fyrirtæki sem vinna að því að selja lyf, krem og aðra vöru sem inniheldur plöntur (Urta Islandica…)
– finni tvær til þrjár uppskriftir sem innihalda plöntur og prófi a.m.k. eina þeirra í skólanum
-ráði við einfalda matseld |
– nemendur smíða eigin blómapressu
– nemendur læri að pressa blóm og finna leiðir til þess að nýta þurrkuð blóm t.d. í skreytingar
– nemendur sýni sjálfstæð vinnubrögð og beiti skipulögðum vinnubrögðum samkvæmt ákveðnu ferli – vinni með tré, sög og skrúfur. Kynnist útliti blómapressu og notkun þeirra í gegnum tíðina -læri að nota verkfæri á ábyrgan hátt.
|