Íþrótta- og sundkennsla

 

Íþrótta- og sundkennsla yngri deildar

Íþróttakennsla yngri deildar fer fram í Samkomuhúsinu Baldri en einnig úti þegar veður leyfa. Það er Heiðrún Helga Hjörleifsdóttir sem sér um íþróttakennslu yngri deildar.

Sundkennsla fer fram að hausti og vori hjá yngstu nemendum í Sundlauginni á Drangsnesi. Það er Magnea Dröfn Hlynsdóttir íþróttakennari á Hólmavík sem kennir. Að auki fara nemendur í sundleiki einu sinni í viku meðan veður leyfa. 

Íþrótta- og sundkennsla mið- og eldri deildar

Nemendur í eldri deild á Drangsnesi fara í íþróttir og sund með jafnöldrum sínum á Hólmavík á samstarfsdögum þar. Það er Magnea Dröfn Hlynsdóttir íþróttakennari sem kennir hvort tveggja.