
Val
Á hverju skólaári undirbúa starsfmenn lista yfir valgreinar sem standa nemendum í unglingadeild til boða það árið. Gerðir hafa verið íþrótta- og tómstundasamningar sem felast í því að nemendur sem stunda nám í tónlist eða annarri listgrein og eða æfingar í íþróttagreinum s.s. eins og gönguskíðaíþróttinni gera samning um að fá nám sitt utan skólans metið inn sem valgrein. Kennari eða þjálfari veitir umsögn í lok skólaárs og metur hæfni viðkomandi nemanda.
Undanfarin ár hefur verið leitast enn fremur við að auka úrval valgreina sem nemendur geta valið. Sumt hefur verið í samstarfi við Grunnskólans á Hólmavík og félagsmiðstöðina Ozon. Þá hafa sumir verið í fjaráföngum í framhaldsskóla, sinnt frumkvæðisverkefnum, áhugasviðsverkefnum og líkamsrækt fyrir elstu nemendur.
Veturinn 2025-2026 verður sú nýjung að boðið verður upp á starfskynningarval þar sem nemendur prófa að fara á nokkra vinnustaði og kynna sér hvað þar fer fram og vinna við hlið starfsmanna. Einnig er verið að skoða val um samfélagsverkefni sem verið er að útfæra.