Leikverkið Dúkkulísur frumsýnt um helgina
Frá því fyrir áramót hafa nemendur á unglingastigi Grunnskóla Drangsness og Grunnskóla Hólmavíkur unnið með leikverkið Dúkkulísur eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur sem verður frumsýnt föstudaginn 22. febrúar í Félagsheimilinu á Hólmavík. Esther Ösp Valdimarsdóttur kennari við Grunnskóla Hólmavíkur stýrir leikhópnum og er verkefnið hluti af leiklistarverkefninu Þjóðleik. Þjóðleikhúsið hleypti Þjóðleik af stokkunum fyrir um tíu árum og hefur fjöldi ungmenna alls staðar af landinu tekið þátt frá upphafi. Markmiðið er að tengja Þjóðleikhúsið á „lifandi hátt við ungt fólk á landsbyggðinni og efla þannig bæði áhuga þess og þekkingu á listforminu“ eins og segir í nýlegri umfjöllun Morgunblaðsins um verkefnið. Blásið verður til leiklistarhátíðar í mars og munu þá allir leikhóparnir koma saman á Hólmavík. Látið þessa spennandi sýningu ekki fram hjá ykkur fara!