Nemendur hafa undanfarnar vikur unnið að leirvösum og bókamerkjum í myndmennt og nýsköpun. Þau notuðu bæði steinleir og jarðleir í vasana auk þess sem pulsuaðferð var notuð við gerð sumra vasanna og plötuaðferð við aðra. Bókamerkin eru unnin þannig að vatnslitapappír er dýft ofan í vatn þar sem litur hefur verið settur í eftir kúnstarinar reglum (eða tilviljunum) þannig myndast einstaklega fallegt marmara munstur. Næsta föstudag 23. apríl verða þessir hlutir til sölu í Búðinni hér á Drangsnesi – ágóði mun renna til kaupa á skólapeysum.
Í gær miðvikudag varð sú nýjung í skólastarfinu að nemendur og starfsfólk fær hádegismat á Malarkaffi. Þar matreiðir Óskar yndislega rétti og bauð okkur upp á plokkfisk með rúgbrauði sem börnin voru sérlega hrifin af. Boðið verður upp á hádegismat alla daga nema föstudaga út skólaárið.
Við erum hæstánægð með þessa nýjung og allir saddir og sælir þegar þeir koma í skólann eftir hádegismat.
Vegna breyttra sóttvarnaráðstafana og reglna þurfum við því miður að fresta árshátíðarsýningunni FÍASÓL sem átti að fara fram í kvöld, 25. mars.
Við vonum svo sannarlega að við getum haldið sýninguna með pompi og prakt eftir páskafrí eða síðar í vor. Nemendur hafa verið duglegir að æfa söng og leik síðustu þrjár vikur undir leikstjórn Aðalbjargar Óskarsdóttur og Karenar Aspar Haraldsdóttur. Foreldrar spreyttu sig einnig í leikrænum tilburðum 🙂
Nú er árshátíðarsmiðja í fullum gangi hjá okkur hér í Grunnskóla Drangsness. Leikrit um hana Fíusól varð fyrir valinu að þessu sinni og sýningin mun fara fram í Baldri (samkomuhúsinu) fimmtudaginn 25. mars klukkan 19.00. Vegna takmarkana verða gestir ekki fleiri en 50 (börn fædd 2005 og síðar undanskilin) að þessu sinni og verður tveggja metra reglan (annars grímur) í hávegum höfð. Við erum mjög spennt!
Við erum stolt af nemendum okkar í 7. bekk því þær unnu báðar til verðlauna í Stóru upplestrarkeppninni sem fram fór að Hótel Laugarhóli 4. mars. Þar mættust nemendur frá Drangsnesi, Hólmavík og Reykhólum og allir stóðu þeir sig með prýði – til hamingju! – Sigurverarar að þessu sinni voru: 1. sæti: Kristjana Kría nemandi í Grunnskóla Drangsness 2. sæti: Kristbjörg Lilja nemandi í Grunnskólanum á Hólmavík 3. sæti: Guðbjörg Ósk nemandi í Grunnskóla Drangsness
Hér má hlusta á umfjöllun um keppnina í Mannlega þættinum á RÚV
Jólaskemmtun Grunnskóla Drangsness var haldin með breyttu sniði í ár vegna heimsfaraldursins Covid-19. Í stað þess að fylla húsið af góðum gestum tóku aðeins nemendur og kennarar þátt en Kristín Einarsdóttir okkar kona á Ströndum var svo elskuleg að koma með upptökutækið sitt svo allir gætu fengið að heyra yngstu börnin syngja við undirleik þeirra eldri, spjalla um jólin, hitta bjúgnakræki í gegnum Zoom og dansa í kringum jólatréð. Lögin sem sungin voru: Jólin eru okkar, Vánoce, Vánoce přicházejí (tékkneskt jólalag) og Jingle Bells.
Með jólakveðju frá nemendum og starfsmönnum Grunnskóla Drangsness
Miðvikudaginn 18. nóvember var blásið til málþings í skólanum en það voru nemendur í eldri deild (7.-9. bekk) sem stóðu fyrir því. Málþingið er hluti af verkefninu Deilt um orkuna af vefnum Náttúrufræði á nýrri öld (NANO) en eftir að hafa kynnt sér orkuver af ólíku tagi settu nemendur sig í spor persóna sem hafa ólíkra hagsmuna að gæta; forstjóra orkufyrirtækis, náttúruverndarsinna og bæjarfulltrúa. Þessar persónur héldu síðan erindi á málþinginu og komu sínum sjónarmiðum á framfæri. Aðrir nemendur og starfsmenn skólans beindu að lokum spurningum til þeirra sem héldu erindi á málþinginu og urðu umræður mjög fjörugar. Skemmtilegt verkefni sem reynir svo sannarlega á hæfni nemenda til þess að setja sig í spor annarra og geta fært rök fyrir máli sínu ásamt fleiru.
Í dag er Dagur íslenskrar tungu, 16. nóv. 2020, að því tilefni gerðu nemendur í Grunnskóla Drangsness þrjú tónlistar/ljóða-myndbönd, endilega skoðið þau 🙂
Flutningur á frumsömdum rapp texta og myndband. Nemendur: Kristjana Kría, Sara Lind, Elísabet Lea, Júlía og Þorsteinn. Texti (eftir nemendur eldri deildar) :
Já, ég er sko býfluga og sef á Malarhorni
hva
ætlaru að gera ef ég sting þig með litlu horni,
búin
að fljúga í allan dag er orðinn þreytt,
enda
er ég lika orðinn frekar beitt.
Gul, svört
og röndótt og
frekar
feit
sting
þig í lærið
æjæj
greyið þarftu mömmu?
Þarftu mömmu?
————– //// ————————————————————————
Ljóðaupplestur og myndband – ljóð: Norður Strandir eftir Ingimar Karl Elíasson.
Nemandi: Guðbjörg Ósk.
Norður Strandir liggja leiðir
langar götur út með
sjó.
Húnaflói hugann seiðir
heimabyggðar kyrrð og ró.
Sígur alda að svörtum björgum
sömu fjöllin standa vörð.
Eins og fyrir öldum mörgum,
Ennishöfði, Drangaskörð.
Sé ég ótal undraheima
er ég kem í dalinn minn.
Fornar sagnir sögur geyma
um Svan er gekk í fjallið inn.
Gleði vekja gömul kynni,
grænu flosi skrýdd er jörð.
Aldrei hverfur mér úr minni
minningin um Steingrímsfjörð.
————– //// ————————————————————————
Söngur og stafatré.
Nemendur í yngri deild: Katrín Halla, Marianna Fiserova, Friðgeir Logi og Tomás Fisera.
Siglingavísur – íslenskt þjóðlag við texta Einars Benediktssonar
Austankaldinn á oss blés,
upp skal faldinn draga.
Þó velti aldan vargi hlés,
við skulum halda á Siglunes.
Haustvísa. – Þjóðlag frá Belgíu. Texti: Herdís Egilsdóttir
Hvert er horfið laufið
sem var grænt í gær?
Þótt ég um það spyrji
verð ég engu nær.
Blöðin grænu hafa
visnað,
orðin gul og rauð.
Ef ég horfi miklu
lengur
verður hríslan auð.
Hvínandi vindur – Lag og texti: Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
Við byrjuðum og enduðum fornleifasmiðjuna í Sandvík þar sem
fornleifafræðingar hafa unnið við uppgröft í ár. Lísabet Guðmundsdóttir tók vel
á móti okkur í upphafi og í lok smiðjunnar fræddi Bergsveinn okkur um ýmislegt
sem við kemur lífinu á víkingaöld og tildrög þess að farið var að grafa í Sandvík,
en hann átti einmitt hlut að því.
Í smiðjunni var unnið þvert á íslensku, náttúrufræði, samfélagsfræði og myndmennt. Nemendur kynntust gifsi sem efni, prufuðu að steypa í gifs og grafa upp úr því hlut, nánast eins og fornleifafræðingar. Þau fræddust um áhrif ýmissa efna (uppfinningu efna t.d. plast) á söguna og listasöguna okkar og bjuggu til tímalínu í stofu yngri deildar til að sjá þetta betur fyrir sér. Jarðlög voru einnig skoðuð sérstaklega og rætt hvernig þau leika lykilhlutverk í aldursgreiningu fornminja. “Elsti hluturinn heima hjá þér” var skemmtilegt verkefni þar sem nemendur komu með einn hlut í skólann og skoðuðu hann sérstaklega og töluðu um hann fyrir hópinn. Yngri deild bjó til landnáms fæðuhring og til þess skoðuðu þau myndir af beinum sem fundust í Sandvík. Í framhaldi veltu þau fyrir sér hvernig matardiskar framtíðarinnar munu líta út. Það vildi svo skemmtilega til að tveir ungir menn komu frá Árnastofnun með verkefnið: Handritin til barnana, í upphafi smiðjunnar og komu með ýmislegt til að sýna okkur. Þeir sögðu listilega vel frá og töluðu um það hvernig handritin urðu til og hvaða merkingu þau hafa fyrir okkur.
Jarðlög úr gifsi / tilraun
Fagradalsleirinn skoðaður
nýtt -gamalt -eldra -elst
Elsti hluturinn heima hjá þér
Tímalínan okkar
Rostungstönn sem fannst þegar grafið var fyrir grunni skólans
í Sandvík
Handritin til barnanna – Árnastofnun kom í heimsókn