Aðalbjörg Óskarsdóttir – minning

Aðalbjörg Óskarsdóttir, Alla, féll frá þann 18. mars sl. eftir snörp veikindi sem hún tókst á við af miklu æðruleysi. 

Alla starfaði sem kennari við Grunnskóla Drangsness frá árinu 2003 og átti því 20 ára starfsafmæli í janúar síðastliðnum. Á þessum 20 árum kenndi Alla fjölmörgum nemendum og bætti sjálf í nemendahópinn en þau Halldór Logi, eiginmaður hennar, eignuðust Sigurbjörgu Halldóru, Guðbjörgu Ósk og Friðgeir Loga á árunum 2004-2012 sem öll hafa numið við skólann. Alla starfaði sem trúnaðarmaður, umsjónarkennari og skólastjóri við skólann ásamt því að taka virkan þátt í félagsstarfi kennara sem stjórnarmaður í Kennarafélagi Vestfjarða. Öll þessi störf vann hún af einurð og var ávallt tilbúin að leysa verkefni, stór og smá ásamt því að leggja öðrum lið. 

Eitt af mikilvægustu hlutverkum Öllu hér við skólann var að taka að sér að vera minniskubbur hans, stofnanaminnið sjálft sem reyndist algjörlega ómetanlegt. 

Í gegnum farsælan starfsferil Öllu voru starfsmannaskipti nokkuð tíð eins og gengur og gerist í fámennum skólum á landsbyggðinni og þess vegna var hlutverk hennar í skólanum afar mikilvægt. Öll þau sem störfuðu með Öllu eða kynntust henni í gegnum samstarf á milli skóla hér á svæðinu eru henni innilega þakklát fyrir hlýjar og góðar móttökur en ekki síst fyrir að leiða okkur inn í sögu og hefðir skólans og staðarins sem henni þótti svo ógnarvænt um. Fyrir það erum við samstarfsfólk hennar óendanlega þakklát. 

Alla var kennari af lífi og sál, hún gaf sig alla í starfið og sýndi nemendum sínum mikla umhyggju. Stelpurnar muna eftir því hvað hún var góð í að flétta og börnin öll hvernig hún gaf þeim orku bara með því einu að koma inn í skólastofuna og brosa. Hún tók þátt í leikjum barnanna, huggaði og sýndi öllum hlýju með mjúku og góðu faðmlagi. Hún var glaðlynd og blíð, eiginleikar sem skipta mjög miklu þegar unnið er með börnum og ungmennum. Sem samstarfsmaður var Alla algjörlega einstök, hún var jákvæð og röggsöm ásamt því að taka virkan þátt í því að gera skólann að skapandi og skemmtilegum vinnustað. Allt starfið í kringum árshátíð skólans, þegar ár hvert er sett upp leikrit í samkomuhúsinu Baldri, bar Alla uppi. Þarna var hún í essinu sínu; leikstýrði, setti upp sviðið, kom að öllu sem þurfti til þess að gera eftirminnilega sýningu að veruleika auk þess að baka pizzur ofan í allan leikhópinn daginn fyrir frumsýningu. 

Við munum taka Öllu okkur til fyrirmyndar og halda áfram því góða starfi sem hún vann hér við Grunnskóla Drangsness, við hefðum viljað njóta krafta hennar svo miklu lengur en við munum tryggja að minning Öllu lifi hér í skólanum um ókomna tíð. 

Elsku Alla okkar 

Elsku yndislega, brosmilda, jákvæða, bjarta, söngelska, lausnamiðaða og úrræðagóða Alla okkar.

Hjartað okkar er í molum og við eigum erfitt með að sætta okkur við bitran raunveruleikann, að þú sért farin frá okkur. Síðustu mánuðir hafa verið erfiðir fyrir ykkur fjölskylduna en jákvæðni og æðruleysið einkenndi ykkur fjölskylduna og þá sérstaklega þig allan þennan tíma. Við vorum allar svo bjartsýnar á að þú myndir sigrast á þessum veikindum. Síðasta heimsókn þín í skólann í janúar til okkar var svo dýrmæt og mun lengi dvelja í hjörtum okkar. Þá varst þú að fara suður til læknis og talaðir um að þetta yrði skottúr suður og þú yrðir komin aftur heim eftir nokkra daga, en svo varð því miður ekki. 

Elsku Alla okkar nú er komið að erfiðri kveðjustund og óhugsandi að við munum ekki fá að heyra þig hlæja, syngja eða sjá fallega brosið þitt. Þú munt ávallt vera í hjörtum okkar og við munum gera okkar allra besta til að halda minningu þinni á lofti innan skólans, skólans sem þér þótti svo vænt um og starfaðir við síðastliðin 20 ár.

Elsku Halldór, Sigurbjörg, Guðbjörg og Friðgeir, fjölskylda og tengdafjölskylda við sendum ykkur okkar dýpstu samúðarkveðjur, ljós og styrk á þessum erfiðu tímum

Minningin um yndislegu Öllu okkar mun lifa 

Marta, Heiðrún og Ásta

Við hvetjum þá sem vilja minnast Öllu að leggja krabbameinsfélaginu Sigurvon lið með því að styrkja það 0154-26-002010 Kt. 470102-4540.

Ljósmyndir úr safni starfsmanna skólans