Skólarjúpurnar
 Nemendur skólans hafa verið yfir sig ánægðir með gesti vikunnar en á skólalóðinni hafa nú dvalið um átta rjúpur alla vikuna. Sigurbjörg Halldóra nemandi í 7. bekk smellti meðfylgjandi mynd af þegar rjúpurnar voru að skoða nýja leiksvæðið okkar. Brátt hefst ný önn hér í GáD en næstu tvær vikur verður nóg um að vera; föstudaginn 28. október heimsækja þær Freyja Haraldsdóttir og Embla Guðrúnardóttir Ágústsdóttir okkur en þær ætla að fræða nemendur, kennara og aðra áhugasama um fötlunarfordóma og mannréttindi. Viku síðar eða föstudaginn 4. nóvember verður opið hús en þá gefst foreldrum, ömmum, öfum og öðrum vinum skólans færi á að sjá að hverju við höfum verið að vinna þessa haustönnina.

 Við skólann verður nýtt matstæki í lestri nú tekið til notkunar en það hefur fengið nafnið Lesferill og er gefið út af Menntamálastofnun. Matstækið var kynnt sérstaklega af þeim Brynju Baldursdóttur og Ingibjörgu Þorgerði Þorleifsdóttur á fundi sem haldinn var í skólanum föstudaginn 30. september.
Við skólann verður nýtt matstæki í lestri nú tekið til notkunar en það hefur fengið nafnið Lesferill og er gefið út af Menntamálastofnun. Matstækið var kynnt sérstaklega af þeim Brynju Baldursdóttur og Ingibjörgu Þorgerði Þorleifsdóttur á fundi sem haldinn var í skólanum föstudaginn 30. september. Tveir ungir Drangsnesingar, þær Inga Hermannsdóttir og Sandra Dögg Guðmundsdóttir tóku nýverið þátt í verkefninu Heimabyggðin mín annað árið í röð. Á síðasta ári fengu þær þriðju verðlaun fyrir ritgerðina Ferðamannaparadísin Drangsnes. Nú í ár var lagt upp með að útfæra nánar hvernig þetta á að gerast og fyrir valinu var Grásleppu og nytjasetur. Teiknað og skipulagt var hús ásamt því að staðsetja það og ákveðið hvernig útstillingar yrðu.
Tveir ungir Drangsnesingar, þær Inga Hermannsdóttir og Sandra Dögg Guðmundsdóttir tóku nýverið þátt í verkefninu Heimabyggðin mín annað árið í röð. Á síðasta ári fengu þær þriðju verðlaun fyrir ritgerðina Ferðamannaparadísin Drangsnes. Nú í ár var lagt upp með að útfæra nánar hvernig þetta á að gerast og fyrir valinu var Grásleppu og nytjasetur. Teiknað og skipulagt var hús ásamt því að staðsetja það og ákveðið hvernig útstillingar yrðu.